Forpöntunar afsláttur gildir til og með 7. júní og er afhending áætluð 8-12. júní.
ATH. Til þess að breyta þessu ljósi í þokuljós þarf sérstaka hlíf sem verður fáanleg haustið 2026.
Ljósameistarinn í samstarfi við OZZ hannaði þetta magnaða punkt ljós sérstaklega með þarfir íslenskra vörubílstjóra og jeppamanna í huga, þessi ljós voru framleidd í takmörkuðu upplagi eingöngu fyrir Ísland.
Þó svo að ljósið líti að mörgu leyti eins út og hinn hefðbundni OZZ XR2 kastari þá er búið að breyta ansi miklu, mjög fókuseraður punktur sem lýsir 1 lux @ 1.296m sem gerir þetta ljós að langdrægasta kastara sem Ljósameistarinn hefur komist með puttana í og þó víðar væri leitað!
-Nýjar afkastameiri díóður
-Speglum breytt þannig að allt ljósið er nú SPOT
-BOOST Mode 1 lux @ 1.296 (Mælt með hárnákvæmum mælitækjum OZZ í Gautaborg)
-Hægt að breyta í fullkomið þokuljós með hlíf sem er smellt yfir (hlífar væntanlegar haust 2026)
-Gult/hvítt stöðuljós
-IP68/69K
-3 ára ábyrgð