OZZ SQR 3" vinnuljós

  • Tilboð
  • Verð 26.900 kr
Með VSK


OZZ SQR 3” vinnuljósið er næsta skref í þróun SQR línunnar og sameinar einkennandi kassalaga hönnun við öfluga og skilvirka lýsingu í nettum pakka. Ljósið skilar allt að 3.500 raunlúmenum með skýru 5000K litahitastigi sem tryggir náttúrulega og þægilega birtu við krefjandi vinnuaðstæður.

Með 1 lux á 75 metrum færðu áræðanlegt skyggni, á meðan breið flóðlýsing dreifir ljósinu jafnt yfir vinnusvæðið. Þetta gerir ljósið sérstaklega hentugt fyrir vinnu í návígi, á verkstæðum, vinnusvæðum, á tækjum og fyrir almenna svæðislýsingu.

SQR 3” er ekki aðeins vinnuljós heldur einnig öryggislausn. Innbyggt viðvörunarljós með Double Flash blikkmynstri eykur sýnileika og öryggi við vegavinnu, framkvæmdir og aðstæður þar sem birtuskilyrði eru slæm.

Helstu kostir:

  • 3.500 raunlúmen – öflug og skýr lýsing
  • 5000K litahitastig fyrir náttúrulega birtu
  • Breið og jöfn flóðlýsing
  • 75 m drægni við 1 lux
  • Tvöfalt hlutverk: vinnuljós og viðvörunarljós
  • Double Flash blikk fyrir aukið öryggi

 

Specifications

LED
LP
4
10-32V DC
Work light,Warning light
60W
60W
50W
46.6W
4.18A
1.94A
4800
3500
5000
Flood
75m
Double flash
Amber,White
Clear
IP68,IP69K
4-PIN DT Male+female
1000
Polycarbonate
Aluminium
Stainless steel
97
50
97
115.81
-40°C - +60°C
ECE R23,ECE R65 Class 2
ECE R10