Ljósin eru einstaklega nett 4. díóðu LED stöðuljós sem henta vel fyrir vörubíla, sendibíla, eftirvagna og önnur tæki. Þunn og stílhrein hönnun gerir ljósin auðveld í uppsetningu þar sem pláss er takmarkað, án þess að skerða sýnileika eða endingu.
Ljósin koma í gulu og rauðu með reyklitaðri linsu.
🔧 Helstu eiginleikar
- Dökkt GRAPHITE útlit
- Lág orkunotkun
- Sterk og endingargóð hönnun
- 4 LED díóður
- IP68 vatns- og rykvörn
⚙️ Tæknilegar upplýsingar
- Spenna: 12V / 24V
- Afl: 0,6W / 1,2W
- Kapall: 2 x 0,75 mm²
- Kapallengd: 0,25 m